Vinnustaðurinn
Við erum fyrst og fremst apótek sem lætur fólki líða betur. Hjá Apótekaranum starfar sérfræðmenntað fólk og ráðgjafar í heilsu. Okkur er umhugað um að aðstoða viðskiptavini okkar og láta starfsfólki okkar líða vel. Því ef það lætur fólki ekki líða betur þá gerum við það ekki. Þetta leiðarljós gildir jafnt inn á við og út.


Kjarninn í apótekurunum okkar
Hjá Apótekaranum vinnum við saman að því að gera heilsu fólks betri á hverjum degi. Við trúum á að skapa vinnustað þar sem starfsfólki líður vel, finnur tilgang og fær tækifæri til að vaxa í starfi. Það er hluti af því sem gerir okkur að bláa liðinu. Við höfum það að leiðarljósi að gera allt fyrir líðan starfsmanna og viðskiptavina.
Allt starfsfólk Apótekarans eru apótekarar og er fagmennskan ávallt í fyrirrúmi. Við byrjum alltaf á manneskjunni en ekki hillunum. Starfsfólk starfar hjá Apótekaranum því það vill vaxa, læra, upplifa traust og fá tækifæri til styðja við heilsueflingu. Við aðstoðum viðskiptavini okkar í augnhæð og sýnum vandamálum þeirra skilning, hver sem þau eru.
Hvað bjóðum við upp á?

Skemmtilegur vinnustaður
Apótekarinn býður upp á skemmtilegan og líflegan vinnustað. Starfsmannafélagið Forte heldur úti öflugu viðburðahaldi og félagið sjálft býður starfsfólki einnig reglulega upp á skemmtanir, þar á meðal árshátíð sem haldin er með pompi og prakt. Mikil áhersla er lögð á gott upplýsingaflæði til starfsfólks og stjórnenda.

Heilsueflandi vinnustaður
Heilsan er aðalatriðið í starfsemi Apótekarans og við hvetjum starfsfólk til að huga vel að sinni heilsu. Starfsfólk fær 20.000 króna íþróttastyrk árlega sem er til viðbótar við styrk sem mörg stéttarfélög veita.
Starfsfólki og mökum þeirra býðst að nýta sér heilsufarsmælingar í apótekum sér að kostnaðarlausu.
Við styðjum við andlegu heilsu starfsfólks og aðstoðum við bókun sálfræðiþjónustu ásamt því að taka þátt í kostnaði.

Skóstyrkur
Starfsfólk Apótekarans sem starfar í apótekum fær beiðni hjá samstarfsaðilum fyrir vinnuskóm

Afsláttur fyrir apótekara
Starfsfólk Apótekarans fær afslátt af nær öllum vörum í apótekinu. 25% afsláttur er veittur af almennum vörum, 10-15 % af lausasölulyfjum. Þrisvar á ári er boðið upp á 35% afsláttarkjör í stað 25% fyrir ákveðin tímabil.
Apótekarar velja fjóra góða vini eða fjölskyldumeðlimi sem njóta sömu kostakjara.

Fræðsla og nám
Öflugt fræðslustarf er lykillinn að því að efla fagmennsku í starfi. Apótekarinn heldur úti fræðslu er varða heilsu, vörur, lyfjaþróun og forvarnir.
Sérstök þjónustufræðsla er haldin fyrir ráðgjafa í apótekum og reglulega er haldin leiðtogaþjálfun fyrir stjórnendur hjá félaginu.
Árlega er haldinn Lyfjadagur Apótekarans fyrir lyfjafræðinga þar sem boðið er upp á spennandi gestafyrirlesara.
Við styðjum við lyfjafræðinema sem starfa hjáokkur og bjóðum þeim upp á að sækja um námsstyrk fyrir skólagjöldum í HÍ, 75.000 kr.
Við styðjum við lyfjatækninema sem starfa hjá okkur og bjóðum þeim að sækja um styrk fyrir innritunar- og þjónustugjaldi Fjölbrautaskólans í Ármúla

Góð samskipti og sérkjör á fjarskiptum
Við hvetjum starfsfólk til að eiga í góðum samskiptum sín á milli og við notum sérstaka miðla til að hvetja til að ýta undir samskipti milli starfstöðva. Apótekurum bjóðast sérkjör af fjarskiptaþjónustu hjá samstarfsaðilum.

Fjölskylduvænn vinnustaður
Við bjóðum upp á fjölskylduvænan vinnustað og skiljum að sveigjanleiki er mikilvægur. Starfsfólk getur sótt um að vera í hlutastarfi sem getur hentað vel í kringum barneignir eða í aðdraganda starfsloka.
Einnig er möguleiki að starfa í apótekum víðsvegar um landið.

Við hugsum um okkar fólk
Stórafmæli eru til þess að halda upp á og við gleðjum okkar fólk við slík tilefni. Einnig gefum við litlum apótekurum sem fæðast gjöf frá Gamla apótekinu og foreldrar fá gjafakort hjá Apótekaranum.

Starfsfólk
Mannauður er mikilvægasta auðlind fyrirtækja. Hjá Apótekaranum kappkostum við í að hafa gott starfsumhverfi, viðhalda góðum starfsanda og gefa starfsfólki tækifæri á að vaxa og dafna í sínu hlutverki.
Hjá Apótekaranum starfa hátt í 300 starfsmenn víðsvegar um landið og hafa margir starfað frá stofnun fyrirtækisins. Við erum stolt af okkar starfsfólki sem leggur metnað í að gera vel og sinna starfi sínu af alúð.
