Húðlæknar mæla með sólarvörn með styrkleika 50+. Ástæða þess að mælt er með svo háum styrk er að við berum ekki alltaf alveg rétt á okkur sólarvörnina. Það er til dæmis algengt að fólk sé að drífa sig og henni því ekki dreift jafnt yfir alla húðina. Þar að leiðandi skilar 50+ sólarvörn besta árangri við verndun húðarinnar. Ef notuð er sólavörn með lægri styrkleika, er mikilvægt að passa vel upp á notkun á vörninni og passa að henni sé dreift jafnt yfir alla húðina til að sá styrkleiki skili tilætluðum árangri.
Hvenær er best að nota sólarvörn?
Best er að nota sólarvörn alla daga, þá sérstaklega á andlit, háls og jafnvel á handabök. Ef það er mikil sól, er mælt með að bera sólarvörn á allan líkamann á 2 klst. fresti og strax eftir sundferðir og annað busl í vatni, til að forðast sólbruna. Dagkrem eða aðrar vörur sem innihalda sólarvörn veita vörn að hluta til, en mælt er með að nota sólarvörn yfir þessi krem fyrir bestu vörnina. Hægt er að nota sólarvörn í sprey formi yfir farða þannig farðinn eyðileggist ekki.












