Bólusetningar hjá Apótekaranum
Við hjá Apótekaranum erum ánægð að geta boðið upp á inflúensubólusetningu í apótekum okkar og lagt þannig okkar af mörkum til betri heilsu landsmanna. Nú geturðu fengið inflúensubólusetningu í apótekum Apótekarans, fljótt og án tímapöntunar.
Lyfjafræðingar Apótekarans bólusetja einstaklinga 18 ára og eldri sem tilheyra forgangshópum samkvæmt tilmælum sóttvarnalæknis.


Hverjir eru í forgangi fyrir inflúensubólusetningu?
- Allir 60 ára og eldri.
- Fullorðnir með langvinna hjarta-, lungna-, nýrna- eða lifrarsjúkdóma, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdóma eða aðra ónæmisbælandi sjúkdóma.
- Heilbrigðisstarfsfólk sem annast einstaklinga í ofangreindum áhættuhópum.
- Fólk sem vegna starfs síns er í aukinni hættu á samsmiti árlegrar inflúensu og fuglainflúensu, sjá nánar [hlekkur á leiðbeiningar sóttvarnalæknis].
Barnshafandi konum er bent á að leita til mæðraverndar vegna inflúensubólusetningar og við beinum foreldrum barna á aldrinum 6 mánaða til 5 ára að leita á sína heilsugæslu.

Engin tímapöntun – komdu bara við
Ekki þarf að bóka tíma. Bólusett er alla virka daga á eftirtöldum stöðum:
- Apótekarinn Austurveri: kl. 9–14
- Apótekarinn Granda: kl. 10–18
- Apótekarinn Kirkjusandi: kl. 9–13
- Apótekarinn Selfossi: kl. 11–15
- Apótekarinn Vestmannaeyjum: kl. 9–13
Gott að vita:
- Þú þarft ekki lyfseðil frá lækni.
- Hafa þarf skilríki meðferðis.
- Bólusetningin tekur um 15 mínútur.
- Bólusetningin er gjaldfrjáls fyrir forgangshópa.
- Notað er bóluefnið Influvac.
Hvað kostar bólusetning?
Bólusetning gegn inflúensu er einstaklinum í forgangshópi þeim að kostnaðarlausu
Aðrir þurfa að greiða fyrir inflúensubóluefni kr. Xxx






