Sex leiðir að heilbrigðu tannholdi
Heilbrigt tannhold er ein af undirstöðum góðrar munnheilsu og lykilinn að því að halda eigin tönnum út lífið.
1. Burstaðu vel – en varlega
Það er ekki krafturinn sem skiptir máli heldur tæknin. Nú þegar við höldum eigin tönnum lengur en áður verður sífellt mikilvægara að huga að sliti og verndun tanna og tannholds. Of mikill þrýstingur við tannburstun getur valdið sliti á tannhálsum og áverkum á tannholdi.
Mjúkur tannbursti og rétt burstunartækni hjálpa til við að fjarlægja bakteríuskán á mildan og árangursríkan hátt, án þess að beita eigi óþarfa krafti. Curaprox-tannburstarnir eru dæmi um bursta með þéttum, fíngerðum og mjúkum hárum sem henta vel til daglegrar hreinsunar.
2. Ekki gleyma bilunum milli tannanna
Tannburstinn nær ekki að hreinsa öll svæði milli tannanna. Þar getur bakteríuskán safnast fyrir og valdið tannholdsbólgu.
Þegar tannholdið hefur hörfað og bilin milli tannanna stækka dugar tannþráðurinn oft ekki einn og sér og millitannaburstar verða þá mikilvægir. Millitannaburstar eru einnig sérstaklega gagnlegir við hreinsun í kringum tannréttingatæki, stoðboga og ýmis tanngervi, svo sem brýr og tannplanta.
Millitannaburstar eru góðir fyrir stærri tannbil og óregluleg yfirborð. Mikilvægt er að velja rétta stærð fyrir hvert bil svo hreinsunin verði bæði árangursrík og mild. Curaprox býður upp á millitannabursta í mismunandi stærðum sem hægt er að aðlaga að þörfum hvers og eins.
3. Nærðu tannholdið innan frá
Veldu fjölbreytta fæðu sem inniheldur meðal annars C-vítamín, omega-3 fitusýrur, grænmeti, ávexti og prótein. Góð næring styður við heilbrigði vefja og eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins.
4. Hugsaðu um meira en bara tennurnar
Svefn, streita, hreyfing, reykingar og almenn heilsa geta haft áhrif á tannholdið. Heilbrigður lífstíll og góð munnhirða fara saman.
5. Hlustaðu á viðvörunarmerkin
Blæðing, roði, þroti eða breytingar á tannholdi eru ástæða til að skoða málið nánar. Tannhaldsbólga getur þróast án mikilla verkja og því skipta reglulegt eftirlit, snemmbær greining og rétt meðferð miklu máli.
6. Láttu fjarlægja tannstein og farðu reglulega í eftirlit
Þrátt fyrir góða daglega tannhirðu getur bakteríuskán safnast fyrir á stöðum sem erfitt er að hreinsa. Þegar skánin kalkast myndast tannsteinn sem ekki er hægt að fjarlægja með venjulegum tannbursta eða tannþræði.
Tannsteinn getur myndast bæði ofan og neðan tannholdsbrúnar. Hrjúft yfirborð hans auðveldar bakteríuskán að safnast fyrir og getur stuðlað að viðvarandi bólgum í tannholdi. Þess vegna er mikilvægt að fara reglulega til tannlæknis eða tannfræðings í skoðun og hreinsun. Þar er hægt að fjarlægja tannstein, meta heilbrigði tannholdsins og greina breytingar áður en þær þróast yfir í alvarlegri vandamál.
Hversu oft þörf er á hreinsun og eftirliti fer eftir aðstæðum hvers og eins. Sumir þurfa tíðari heimsóknir en aðrir, sérstaklega þeir sem hafa sögu um tannholdsbólgu.
Regluleg fagleg hreinsun og góð dagleg munnhirða vinna saman að því að varðveita heilbrigt tannhold og eigin tennur sem lengst.
Ekkert er betra en eigin tennur
Litlar daglegar venjur geta skipt sköpum.
*Í þessari grein er orðið tannhold notað til einföldunar. En tannvegur nær einnig til beina og annarra stoðvefja sem halda tönnunum föstum í kjálkanum.
Hrönn Róbertsdóttir, tannlæknir
Brosið tannlæknastofa



















