Beint í efni
Leita

Munnþurrkur - hvað er til ráða?

Munnþurrkur er ein algengasta aukaverkun lyfjanotkunar. Yfir 500 lyf hafa verið tengd við munnþurrk, þar á meðal mörg af mest notuðu lyfjunum á markaðnum. Þar sem margir taka lyf til langs tíma skiptir rétt meðhöndlun á munnþurrk miklu máli, bæði fyrir munnheilsu og lífsgæði.

Stefán Pálmason
Tannlæknir og sérfræðingur í lyflækningum munns

Af hverju skiptir munnvatnið máli?

Munnvatnið smyr slímhúðina og minnkar núning við tennur og fæðu. Það ver munninn gegn bakteríum, sveppum og veirum, hlutleysir sýrur og hjálpar tönnunum að endurkalkast. Það auðveldar einnig tal, kyngingu og hefur fyrstu stig meltingar.

Þegar munnvatnið minnkar eykst hætta á tannskemmdum, tannholdsbólgum, sárum í slímhúð og sveppasýkingum. Margir eiga líka erfitt með að tala, kyngja og sofa.

Hvað veldur munnþurrki?

Algengustu orsakirnar eru lyfjanotkun, kvíði og vökvaskortur. Meðal lyfja sem oft valda munnþurrki eru blóðþrýstingslyf (t.d. þvagræsilyf), ADHD lyf, kvíða- og þunglyndislyf, og lyf við ofvirkri þvagblöðru. Munnþurrkur getur einnig verið vísbending um undirliggjandi sjúkdóma, t.d. sykursýki eða Sjögren sjúkdóm.

Munnvatnsflæðið getur minnkað um allt að helming áður en fólk finnur fyrir einkennum. Einnig geta lyf breytt eiginleikum munnvatnins. Tannheilsu getur því hrakað hratt án þess að viðkomandi verði var við einkenni. Það borgar sig því að láta tannlækninn vita þegar byrjað er á nýjum lyfjum.

Við mælum með

  • XyliMelts Berjabragð 40stk

    XyliMelts Berjabragð 40stk

    2.799 kr.
  • XyliMelts Mild Minta 40stk

    XyliMelts Mild Minta 40stk

    2.799 kr.

Einföld ráð í daglegu lífi

  • Drekktu nóg af vatni og dreyptu á litlum sopum yfir daginn.
  • Minnkaðu koffín og áfengi, sem auka vökvatap.
  • Drekktu með matnum og tyggðu vel til að auðvelda kyngingu.
  • Þurr eða hörð fæða getur valdið áverkum á slímhúð og ber að forðast þegar um mikinn munnþurrk er að ræða
  • Minnkaðu sykraðar fæðutegundir eftir fremsta megni.
  • Sykurlausar töflur, molar og tyggjó örva munnvatnsflæðið en er best að neyta í hófi. Mikil tyggjónotkun getur valdið álagi á kjálkavöðva og mikil gervisæta getur valdið meltingaróþægindum.
  • Rakatæki í svefnherberginu getur dregið úr þurrki á nóttunni.

Hvað fæst í apótekinu?

Ýmsar vörur geta dregið úr einkennum munnþurrks og verndað tennur og slímhúð. Lyfjafræðingur getur ráðlagt hvað hentar best hverju sinni.

  • Munnþurrkstöflur sem festast við tannholdið, leysast hægt upp á nokkrum klukkustundum og má nota allan sólarhringinn, líka í svefni. Töflurnar eru basískar og geta þannig myndað hentugra umhverfi fyrir endurkölkun tanna. Notkun þeirra getur stóraukið svefngæði fólks með munnþurrk og einnig hafa þær reynst mörgum með bakflæði vel þar sem kyngingum fjölgar á meðan sofið er.
  • Rakagel fyrir munn hentar vel á nóttunni þar sem það loðir lengur við slímhúð en vatn eða munnúði. Gel með xylitóli vinnur einnig gegn bakteríum sem valda tannskemmdum.
  • Hýalúrónsýrugel og munnúði draga úr bólgum, flýta fyrir gróanda, auka raka í slímhúð og mynda þunna filmu sem verndar viðkvæm yfirborð.
  • Góðgerlar fyrir munnhol geta dregið úr tannholdsbólgum, fækkað tannskemmdavaldandi bakteríum, minnkað andremmu og tíðni sveppasýkinga.
  • Tannkrem fyrir viðkvæma slímhúð. Ef venjulegt tannkrem veldur sviða geta mild eða bragðlaus tannkrem hentað betur.

Verndaðu tennurnar

• Spurðu tannlækninn um tannkrem með háu flúorinnihaldi, sem dregur úr tannskemmdum. Reglulegar flúorlakkanir geta einnig hjálpað þegar tannskemmdir verða tíðari.

• Farðu reglulega í eftirlit og láttu gera við skemmdir sem fyrst, því þær geta stækkað hratt þegar munnvatnið vantar.

• Ræddu við tannlækninn þinn um ástand tanna þinna og hvort bæta megi munnhirðu með einhverjum hætti.

Tengdar vörur

  • oraNurse Bragðlaust Tannkrem með 1450ppm flúori 50

    oraNurse Bragðlaust Tannkrem með 1450ppm flúori 50

    1.599 kr.
  • Gengigel First Aid Fluid 50ml

    Gengigel First Aid Fluid 50ml

    3.399 kr.
  • XyliMelts Neutral 40stk

    XyliMelts Neutral 40stk

    2.799 kr.
  • BioGaia® Protectis® Plus BABY Dropar með D-Vítamín

    BioGaia® Protectis® Plus BABY Dropar með D-Vítamín

    4.799 kr.
  • Gengigel Munnskol 150ml

    Gengigel Munnskol 150ml

    3.199 kr.
  • Gengigel Oral Gel 20ml

    Gengigel Oral Gel 20ml

    3.199 kr.

Hvenær á að leita aðstoðar?

Leitaðu til tannlæknis eða læknis ef munnþurrkur varir lengi, ef þú færð tíðar tannskemmdir eða sár og sviða í munnslímhúð. Þurrkur í bæði munni og augum getur bent til Sjögren sjúkdóms og er rétt að láta skoða. Hjá fólki með Sjögren sjúkdóm eða eftir geislameðferð á höfuð- og hálssvæði geta lyf sem örva munnvatnskirtlana hjálpað mikið. Lyfjafræðingur getur einnig farið yfir lyfin þín og metið hvort þau eigi þátt í munnþurrknum.

Við hverju má búast?

Munnþurrkur er oft langvarandi vandamál. Stundum er þó hægt að auka munnvatnflæði með því að lækka skammta eða skipta um lyf í samráði við lækni, því ekki valda öll lyf við sama vanda jafn miklum munnþurrki.

Við mælum með

  • BioGaia Prodentis 30 tuggutöflur Mintubragð

    BioGaia Prodentis 30 tuggutöflur Mintubragð

    4.299 kr.
  • BioGaia Prodentis Fresh Breath 30stk + sink

    BioGaia Prodentis Fresh Breath 30stk + sink

    4.599 kr.

Með góðum venjum og réttri meðferð má yfirleitt varðveita lífsgæði og tannheilsu, en meðferðin þarf oft að vera stöðug til langs tíma.

Stefán Pálmason, tannlæknir og sérfræðingur í lyflækningum munns