
Gengigel Munnskol 150ml
Munnskol sem minnkar bólgur í tannholdi og slímhúðum, flýtir fyrir gróanda, hindrar bakteríuvöxt, gefur raka og myndar verndandi lag yfir sárum eða viðkvæmri slímhúð.
Gengigel Munnskol er klínískt prófað Class IIa lækningatæki sem inniheldur hágæða einkaleyfisvarða hýalúronsýru (0,025%). Gengigel er hannað til að flýta fyrir náttúrulegri græðslu slímhúðar, draga úr bólgu og hindra bakteríuvöxt. Sérstaða Gengigel línunnar er að hýalúrónsýran er sérstaklega hönnuð til að henta tannholdinu og rannsóknir sýna að þegar Gengigel er notað með tannholdsmeðferðum getur árangur meðferðanna orðið mun meiri. Einnig hentar Gengigel (ásamt góðri munnhirðu) vel sem forvörn gegn tannholdssjúkdómum. Efnið loðir vel við slímhúðina sem tryggir langvarandi vörn og virkni á viðkvæmum svæðum. Munnskolið hentar vel gegn útbreiddum og endurteknum bólgum í munnslímhúð en einnig sem forvörn gegn tannholdsvandamálum.
Hentar vel við dreifðum bólgum og sem forvörn gegn bólgum.
Sodium Hyaluronate, Aqua, Xylitol, Alcohol, Polysorbate 20, PEG 40 Hydrogenated Castor Oil, Dichlorobenzyl Alcohol, Carbomer (Polycarbophil) , Aroma, Citric Acid, Sodium Hydroxide, Acid Blue 9 (CI 42090).
Notist 3-5 x á dag í 3-5 vikur eða þar til einkenni eru horfin. Skolið með 10 mL í 1-2 mínútur. Ekki borða né drekka í 30 mínútur á eftir.











