Beint í efni
Leita

Sagan á bakvið Dóttir Skin

Ástríða mín fyrir efnafræði snyrtivara hefur fylgt mér lengi. Hún kviknaði í efnaverkfræðinámi Reykjavík og dýpkaði enn frekar þegar leið mín lá til Kaupmannahafnar í meistaranám í hagnýtri efnafræði. Þar fann ég köllun mína: að þróa vörur sem leystu raunveruleg vandamál – ekki bara fyrir mig sjálfa, heldur fyrir aðra líka.

Satt best að segja kviknaði Dóttir Skin út frá smá pirringi. Ég fann enga sólarvörn sem virkaði fyrir mína viðkvæmu húð með tilhneigingu til bólumyndunar – og alls enga sem mig langaði að nota daglega. Ég var einfaldlega orðin þreytt á því að það væri alltaf verið að reyna selja mér húðvörur sem síðan gerðu ekkert fyrir mig.

Það sem fylgdi í kjölfarið var átta ára ferðalag sem hefur einkennst af þrotlausri vinnu, vöruþróun, óteljandi tilraunum og dýrmætum lærdómi. Í dag er ég stolt af því að geta boðið upp á mínar eigin húðvörur sem eru afrakstur þessarar elju. Hver einasta vara er hönnuð af alúð til að vernda húðina og veita þér fullvissu um að þú notir aðeins það besta.

Fyrir mér er Dóttir Skin miklu meira en bara vörumerki. Það er verkefni lífs míns þar sem vísindi, sköpunargleði og í senn samfélagslegar hugsjónir mínar fá að fléttast saman. Ég vona að þú viljir slást í för með okkur á þessu ferðalagi. Saman getum við í alvörunni allt.

Takk fyrir að vera Dóttir,

Helga Sigrún

Vörur frá Dóttir Skin

  • Dóttir Skin

  • Dóttir Skin Alda Essence Serum

    Dóttir Skin Alda Essence Serum

    9.099 kr.
  • 1stk
    3stk

    Dóttir Skin Ljóma Dew Mask

    2.099 kr.
  • 20%
    Dóttir Skin Mineral Broad-Spectrum SPF50+

    Dóttir Skin Mineral Broad-Spectrum SPF50+

    Fyrra verð: 6.099 kr.Núverandi verð: 4.879 kr.
  • 20%
    Dóttir Skin The Dóttir Skin Ritual

    Dóttir Skin The Dóttir Skin Ritual

    Fyrra verð: 16.199 kr.Núverandi verð: 12.959 kr.
Dottirskin - Apótekarinn