






PRADA Paradoxe Sweet Chemistry EDP Refill 100ml
Prada Paradoxe Sweet Chemistry er nýr, áfyllanlegur ávaxta- og blómailmur sem endurskilgreinir sætleikann með einkennandi nerólí-tónum Paradoxe, umvafið mjúkum og kremuðum nótum og ávanabindandi svörtum sólberjasírópstónum.
Prada Paradoxe Sweet Chemistry er nýr, áfyllanlegur ávaxta- og blómailmur sem heillar skilningarvitin með nútímalegri túlkun á sætleika. Einkennandi nerólí tónar Paradoxe líðnunnar sameinast þykkni appelsínublóma, mjúkum, kremuðum mjólkurtónum og ávanabindandi, svörtum sólberjasírópstónum.
Ilmurinn sameinar ríkulega, ávaxtakennda tóna og fágaðan glæsileika sem endurspeglar nútímalegan kvenleika og er á sama tíma mjúkur og kraftmikill, fágaður og flæðandi.
NÁKVÆMT JAFNVÆGI ÁVAXTATÓNA, LJÓMA OG UNAÐS
Ilmurinn er skapaður af ilmmeisturunum Nadège Le Garlantezec, Shyamala Maisondieu og Antoine Maisondieu. Samsetningin byggist upp í safaríkum, kremkenndum og seiðandi lögum sem skapa djúpa og eftirminnilega ilmupplifun.
ÁFYLLANLEG FLASKA
Glæsileg ilmflaska sem er hönnuð til að endast og hægt er að fylla á aftur og aftur. Með því að kaupa 100 ml áfyllingu í stað þess að kaupa tvær nýjar 50 ml Prada Paradoxe Sweet Chemistry flöskur sparast 44% gler, 100% málmar, 67% plast og 61% pappi.
PARADOXE
Paradoxe er boð um að kanna og tjá margþætta sjálfsmynd. Ilmlínan fagnar konu sem er aldrei nákvæmlega eins en ávallt hún sjálf. Ilmirnir þróast með henni þegar hún kannar nýjar hliðar á sjálfri sér, endurskapar sig og endurhugsar hver hún er.
ALCOHOL • PARFUM / FRAGRANCE • AQUA / WATER / EAU • DIISOPROPYL SEBACATE • TETRAMETHYL ACETYLOCTAHYDRONAPHTHALENES • METHYL ANTHRANILATE • TRIS(TETRAMETHYLHYDROXYPIPERIDINOL) CITRATE • DIETHYLAMINO HYDROXYBENZOYL HEXYL BENZOATE • PENTAERYTHRITYL TETRA-DI-T-BUTYL HYDROXYHYDROCINNAMATE • CI 14700 / RED 4 • CI 60730 / EXT. VIOLET 2 • LINALOOL • LINALYL ACETATE • GERANIOL • GERANYL ACETATE • BETA-CARYOPHYLLENE • DIMETHYL PHENETHYL ACETATE • PINENE • ROSE KETONES • VANILLIN • JUNIPERUS VIRGINIANA OIL • TRIMETHYLBENZENEPROPANOL • COUMARIN • FARNESOL • LIMONENE • TERPINEOL • HYDROXYCITRONELLAL • CITRAL • CITRONELLOL • CITRUS AURANTIUM BERGAMIA PEEL OIL • CITRUS AURANTIUM FLOWER OIL • ACETYL CEDRENE • CARVONE • BENZALDEHYDE • BENZYL ALCOHOL • BENZYL BENZOATE • BENZYL SALICYLATE (F.I.L. N70096809/1).
Ilmurinn nýtur sín best í samspili við hlýju húðarinnar. Spreyið ilminum á innanverða olnboga og aftan viðeyru svo hann njóti sín best. Eftir að ilmurinn hefur verið borinn á skaltu forðast að nudda eða klappa húðinni þar sem það getur brotið niður ilmsamsetninguna og valdið því að ilmurinn endist skemur. Ef þú kýst að bera ilminn á úlnliðina skaltu hafa í huga að endurnýja hann eftir tíðan handþvott, þar sem ilmurinn skolast auðveldlega af.














