
PIC Fast Ice kælipoki einnota 2 stk
Einnota kælipokar sem veita hraða kælingu þegar þörf er á. Virkjast á örfáum sekúndum og haldast kaldir í um 30 mínútur.
PIC Fast Ice eru einnota kælipokar sem veita hraða kælingu þegar þörf er á, til dæmis við högg, tognun, bólgu eða eymslum. Kælipokinn er virkjaður með því að þrýsta á hann og verður hann þá kaldur á örfáum sekúndum, án þess að þurfa að setja hann í frysti. Hann er handhægur í skyndihjálpartöskuna, íþróttatöskuna, bílinn eða heimilið og helst kaldur í um 30 mínútur eftir að hann er virkjaður.
Hentar vel til að hafa við höndina heima, í bílnum, á ferðalagi eða við íþróttaiðkun. Veitir hraða kælingu án þess að þurfa að setja pokann í frysti.
Tveir einnota kælipokar, 13,5 × 18 cm.
Notist samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum eða fylgiseðli. Þrýstið á pokann til að virkja kælinguna og leggið hann á viðkomandi svæði eftir þörfum. Einnota vara.











