
oraNurse® bragðlausa tannkremið var upphaflega þróað til að mæta þörfum einhverfra barna sem geta verið mjög viðkvæm fyrir bragði – jafnvel svo að bragðið af vatni getur valdið óþægindum. Úr varð tannkrem sem inniheldur hvorki natríum laurýlsúlfat (SLS), sem veldur froðumyndun, né bragðefni.
Án bragðefna • Án SLS • Freyðir ekki • Milt fyrir viðkvæman munn
Tannkremið fæst með mismunandi styrkleika flúors og hefur lágt RDA-gildi, 29,68, sem þýðir að það er mjög milt fyrir tennurnar. oraNurse® getur hentað sérstaklega vel fyrir fólk sem líkar einfaldlega ekki við mintubragð, fullorðna og börn sem upplifa mintu sem „heita“, sterka eða sviðandi, fullorðna og börn með þroska- eða námsörðugleika, einstaklinga með fléttusótt í munni (lichen planus), einstaklinga sem hafa fengið geislameðferð á höfuð- og hálssvæði, fólk með burning mouth syndrome / sviða í munni, einstaklinga á einhverfurófi, einstaklinga með Sjögren-heilkenni, einstaklinga með Behçet-sjúkdóm, einstaklinga með Kawasaki-sjúkdóm, einstaklinga með Parkinsonsveiki og fólk með óþol fyrir limonene.
Sodium Monofluorophosphate Water Hydrated Silica Glycerine Sorbitol Xylitol Cellulose Gum Sodium Benzoate Titanium Dioxide Methylparaben
Notið kvölds og morgna











