





NAILBERRY Made You Blush
Ferskju- og rósatónaður bleikur litur gefur nöglunum mjúkan og glaðlegan litablæ. Upplífgandi og fágaður litur sem hentar fullkomlega fyrir sólríkar helgar, árstíðabundin brúðkaup og allt þar á milli. Frá fyrstu strokunni rennur þessi einstaklega létta formúla auðveldlega á neglurnar og skilur eftir sig fíngerða og hálfgegnsæja áferð. Auktu gljáa og endingu með lokalagi af UV Gloss Top Coat og gefðu nöglunum heilbrigt og fallegt útlit!
• 21-free
• Oxygenated
Lúxus naglalökkin okkar úr margverðlaunuðu og eiturefnalausu L’Oxygéné línunni hugsa um framtíðarheilbrigði naglanna með einkaleyfis tækni sem skilar heilbrigðari handsnyrtingu. Við erum stolt af því að vera: • Water permeable
• Vegan
• Certified cruelty free
• Certified Halal
• Gluten free
Nailberry naglalökkin eru hugarsmíð Soniu Hully. Hún ákvað strax í upphafi að gefa engan afslátt, hvorki af heilsunni né hátískunni. Í dag hafa Nailberry naglalökkin öðlast sess sem hátískuvara sem notast er við á tískuvikum í stórborgum. En þú getur líka keypt þau á skemmtilegustu jógastöðunum t.d. í London. Það er fallegt að bera naglalakk sem andar og nærir.
Einföld ráð til að láta naglalakkið endast - Berðu eitt þunnt lag á hverja nögl. Leyfðu grunnlakkinu að þorna alveg í 2–3 mínútur. - Dýfðu burstanum í falalegan Nailberry lit, fjarlægðu umfram efni af burstanum og berðu síðan eitt þunnt lag á hverja nögl. Leyfðu lakkinu að þorna í 2–3 mínútur, berðu síðan annað þunnt lag á hverja nögl og leyfðu því að þorna. - Dýfðu burstanum Nailberry Top Coat , fjarlægðu umfram efni af burstanum og berðu síðan eitt þunnt lag á hverja nögl. Ef þú fylgir öllum þremur skrefunum skaltu leyfa handsnyrtingunni að þorna alveg í 10–15 mínútur. Ráð frá sérfræðingi: Til að flýta fyrir þornunartímanum skaltu setja einn dropa af Dash and Dry Oil á hverja nögl.











