

BLUE LAGOON BL+ Lip Renewal Mask 12ml
Áhrifarík varameðferð knúin áfram af BL+COMPLEX™, þróuð til að vinna gegn fínum línum á varasvæði ásamt því að mýkja, slétta og styðja við viðkvæma húð
Áhrifarík varameðferð knúin áfram af BL+COMPLEX™, þróuð til að vinna gegn fínum línum á
varasvæði ásamt því að mýkja, slétta og styðja við viðkvæma húð. BL+ Lip Renewal Mask
sameinar BL+ einkaleyfisvarin lífvirk innihaldsefni með bakúsíóli og seramíðum til að styðja við
kollagenmyndun, styrkja varnarlag varanna og draga úr þurrki. Ríkuleg formúlan nærir á meðan
hún mýkir sýnileika fínna lína og bætir áferð. Sérhannað áhald fylgir með til að tryggja auðvelda
notkun, örva blóðflæði til vara, bæta aðgengi formúlunnar og árangur meðferðar.
Varir eru sjáanlega sléttari, mýkri og með bættri áferð. Sýnleiki fínna lína á varasvæði minnkar á
meðan rakastig eykst og varnarlag varanna styrkist.
• Ríkur og nærandi maski sem bráðnar inn í varirnar
• Mýkir ásýnd fínna lína í kringum varirnar
• Sérhannað áhald fylgir með til að auðvelda notkun, örva blóðflæði til vara og bæta
aðgengi formúlunnar inn í húðina
• Styður við kollagen fyrir fyllri ásýnd vara
• Nærir djúpt og dregur úr þurrki
• Styður við varnarlag húðar
• Klínískt prófaður
• Án ilmefna
• Rekjanleg innihaldsefni valin af ábyrgð
• Vegan
BL+ COMPLEX™ örvar nýmyndun kollagens, dregur úr niðurbroti kollagens og styrkir varnarlag húðarinnar. Við hönnun á BL+ COMPLEX™ er notuð náttúruleg fosfólípíðferja til þess að koma einstakri blöndu af einkaleyfisvörðum örþörungum og kísil Bláa Lónsins djúpt niður í húðlögin til að hámarka virkni. BL+ Minerals™ (sölt úr jarðsjó Bláa Lónsins) endurnærir húðina með nauðsynlegum steinefnasöltum og eykur þannig heildarvirkni formúlunnar. Bakúsíól 0.5% (bakuchiol), innihaldsefni unnið úr fræjum Psoralea coryfolia-plöntunnar, hefur margvíslegan ávinning sem svipar til virkni retínóls. Það þéttir húðina, bætir áferð, húðtón og eykur ljóma. Seramíð (ceramides), veita raka og bæta lípíðforða en þau fyrirfinnast náttúrulega í húðinni. Þau gegna mikilvægu hlutverki í varnarlagi húðarinnar og gera hana mýkri og sléttari. Öll innihaldsefni RICINUS COMMUNIS (CASTOR) SEED OIL, SQUALANE, GLYCERYL STEARATE, OLEIC/LINOLEIC/LINOLENIC POLYGLYCERIDES, WATER (AQUA), SIMMONDSIA CHINENSIS (JOJOBA) SEED OIL, HYDROGENATED CASTOR OIL, VEGETABLE OIL (OLUS OIL), JOJOBA ESTERS, SEA WATER (MARIS AQUA), PENTYLENE GLYCOL, HELIANTHUS ANNUUS (SUNFLOWER) SEED WAX, PROPANEDIOL, LACTOBACILLUS FERMENT, HYDROGENATED VEGETABLE OIL, BAKUCHIOL, CALCIUM KETOGLUCONATE, PUNICA GRANATUM FLOWER EXTRACT, EUPHORBIA CERIFERA (CANDELILLA) WAX (CANDELILLA CERA), POLYGLYCERYL-3 DIISOSTEARATE, TOCOPHEROL, CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, POLYGLYCERIN-3, ACACIA DECURRENS FLOWER WAX, ACMELLA OLERACEA EXTRACT, SORBITAN OLIVATE, GLYCERIN, CERAMIDE NP, LECITHIN, SODIUM HYALURONATE, ALGAE EXTRACT, UNDARIA PINNATIFIDA EXTRACT, SILICA, CAPROIC ACID, CITRIC ACID, SODIUM HYDROXIDE.
Notið yfir daginn og/eða sem síðasta skref í kvöldrútínunni 1. Notið áhaldið til að taka ríkulegt magn af vörunni 2. Berið jafnt lag á hreinar, þurrar varir og svæðið í kringum þær 3. Notið grófari hlið áhaldsins og rennið því mjúklega yfir varirnar og í kringum þær 4. Notið léttar strokur eða hringlaga hreyfingar í nokkrar sekúndur til að örva blóðflæði og bæta aðgengi vörunnar 5. Leyfið vörunni að smjúga inn í húðina. Endurtakið eftir þörfum eða notið sem næturmaska.





















