
BIOEFFECT Pure Power Sett
Gjafasett sem inniheldur EGF Power Serum (15 ml), EGF Power Eye Cream (15 ml) og EGF Power Cream (15 ml)
Eiginleikar og ávinningur
Öflug húðrútína.
Pure Power gjafasettið er vegleg gjöf fyrir þau sem eru farin að sjá sýnileg merki öldrunar, á borð við hrukkur, þurrk og ójafnan húðlit, og kjósa kraftmiklar húðvörur sem skila raunverulegum árangri.
EGF Power Serum (15 ml) er kraftmikið serum sem inniheldur tvo vaxtarþætti, BIOEFFECT EGF og BIOEFFECT KGF, og er sérstaklega þróað fyrir eldri, þroskaða og þurra húð. Húðdroparnir vinna á sjáanlegum öldrunarmerkjum á borð við hrukkur og fínar línur, auka teygjanleika og þéttleika húðarinnar, styrkja ysta varnarlag hennar og draga úr litamisfellum af völdum sólarljóss og UV-geislunar.
EGF Power Eye Cream (15 ml) er öflugt og nærandi augnkrem, sérstaklega þróað til að vinna á sýnilegum öldrunarmerkjum í kringum augun. Kremið dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka, dökkum baugum, þrota og þurrki ásamt því að slétta og þétta viðkvæmt augnsvæðið. Formúlan inniheldur lykilinnihaldsefnið BIOEFFECT EGF ásamt sérvöldum, virkum innihaldsefnum sem skila sýnilegum árangri.
EGF Power Cream (15 ml) er kraftmikið andlitskrem, sérstaklega þróað fyrir þroskaða húð sem þegar er farin að sjá sýnileg merki öldrunar. Kremið veitir djúpan raka, vinnur á hrukkum og fínum línum og stuðlar að jafnari áferð og húðlit, ásamt því að draga úr litabreytingum og ásýnd húðhola. EGF Power Cream er afurð áralangrar rannsókna- og þróunarvinnu og inniheldur einstaka efnaformúlu þar sem BIOEFFECT EGF gegnir lykilhlutverki. Formúlan inniheldur einnig áhrifarík innihaldsefni á borð við betaglúkan, níasínamíð, órídónín og E-vítamín.
EGF Power Serum
· Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
· Eykur teygjanleika og þéttleika, húðin virðist stinnari
· Dregur úr litamisfellum af völdum sólarljóss og UV-geislunar
· Styrkir ysta varnarlag húðarinnar og eykur rakabindingu
· Jafnar áferð og húðlit, húðin virðist sléttari
· Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þroskaðri og þurri húð
· Aðeins 12 innihaldsefni
· Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena, sílikons og glútens
· Prófað af húðlæknum
Stærð: 15 ml
EGF Power Eye Cream
· Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
· Eykur þéttleika, húðin virðist stinnari
· Dregur úr baugum, þrota og þreytumerkjum
· Jafnar húðlit og dregur úr litamisfellum
· Eykur rakabindingu
· Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þroskaðri og þurri húð
· Án ilmefna, alkóhóls, parabena, sílikons og glútens
· Prófað af húð- og augnlæknum
Stærð: 15 ml
EGF Power Cream
· Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
· Eykur þéttleika, húðin virðist stinnari
· Sléttir og þéttir húðina
· Jafnar áferð og húðlit
· Dregur úr litabreytingum
· Dregur úr ásýnd húðhola
· Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þroskaðri og þurri húð
· Án ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
· Prófað af húðlæknum
Stærð: 15 ml
EGF Power Serum Ingredients: GLYCERIN, AQUA/EAU/WATER, SODIUM CITRATE, ACETYL GLUCOSAMINE (NAG), ISOPENTYLDIOL, PHENOXYETHANOL, SODIUM CHLORIDE, SODIUM HYALURONATE, CITRIC ACID, HORDEUM VULGARE (BARLEY) SEED EXTRACT, BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1 (EGF), BARLEY SH-POLYPEPTIDE-3 (KGF) EGF Power Eye Cream: AQUA/EAU/WATER, BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, CETYL ALCOHOL, GLYCERIN, SORBITOL, CAFFEINE, OENOTHERA BIENNIS (EVENING PRIMROSE) OIL, GLYCERYL STEARATE SE, PROPYLENE GLYCOL, CETEARYL OLIVATE, SORBITAN OLIVATE, NIACINAMIDE, SQUALANE, PHENOXYETHANOL, SODIUM CITRATE, BAKUCHIOL, CITRUS LIMON (LEMON) PEEL POWDER, SCLEROTIUM GUM, CITRUS AURANTIFOLIA (LIME) PEEL POWDER, SORBITAN OLEATE, TOCOPHEROL, ETHYLHEXYLGLYCERIN, SODIUM HYALURONATE, XANTHAN GUM, CERAMIDE NG, CITRIC ACID, HORDEUM VULGARE (BARLEY) SEED EXTRACT, BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1 (EGF) EGF Power Cream: AQUA/EAU/WATER, BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, BUTYLENE GLYCOL, SQUALANE, CETYL ALCOHOL, CETEARYL ALCOHOL, C12-20 ACID PEG-8 ESTER, SORBITOL, SORBITAN OLEATE, TOCOPHEROL, NIACINAMIDE, BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1 (EGF), BETA-GLUCAN, ORIDONIN, HORDEUM VULGARE (BARLEY) SEED EXTRACT, SODIUM HYALURONATE, PHENOXYETHANOL, ETHYLHEXYLGLYCERIN, POLYSORBATE 20, CARBOMER, XANTHAN GUM, POTASSIUM HYDROXIDE
Skref 1: EGF Power Serum: Berðu 2–4 dropa á andlit, háls og bringu með mjúkum hringlaga hreyfingum upp á við. Bíddu í 3–5 mínútur áður en aðrar vörur eru bornar á húðina. Má nota kvölds og morgna. Skref 2: EGF Power Eye Cream: Berðu kremið á húðina í kringum augun og nuddaðu því mjúklega inn með fingurgómunum. Byrjaðu við innri augnkrók og dreifðu kreminu jafnt í átt að ytri augnkrók, undir augnbeinið og yfir augnlokið. Skref 3:EGF Power Cream: Berðu á andlit, háls og bringu bæði kvölds og morgna. Nuddaðu mjúklega inn í húðina með hringlaga hreyfingum. Bíddu í 3–5 mínútur áður en aðrar vörur, á borð við sólarvörn eða farða, eru bornar á húðina.











