
BIOEFFECT Hydration Heroes Sett
Gjöf sem inniheldur EGF Serum (15 ml) og Hydrating Cream (15 ml)
Eiginleikar og ávinningur
Gjöf sem veitir húðinni langvarandi raka.
Hydration Heroes gjafasettið sameinar okkar margverðlaunaða EGF Serum, sem vinnur á sjáanlegum öldrunarmerkjum og styður við endurnýjun húðarinnar, og vinsæla Hydrating Cream. Settið er fullkomið fyrir þau sem vilja leggja áherslu á góðan og langvarandi raka, draga úr ásýnd fínna lína og hrukka og veita húðinni heilbrigða og ljómandi ásýnd.
EGF Serum (15 ml) eru byltingarkenndir húðdropar, sérstaklega þróaðir til að vinna á sjáanlegum öldrunarmerkjum á borð við fínar línur og hrukkur, auka þéttleika húðarinnar og veita langvarandi raka. Serumið inniheldur aðeins 7 hrein og áhrifarík innihaldsefni, þar á meðal okkar einstaka BIOEFFECT EGF, endurnærandi vaxtarþátt sem gegnir mikilvægu hlutverki við að efla rakabindingu og viðhalda sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar.
Hydrating Cream (15 ml) er létt og silkimjúkt rakakrem sem veitir húðinni góðan og langvarandi raka. Formúlan sameinar rakagefandi innihaldsefni á borð við hýalúrónsýru, E-vítamín og hreint íslenskt vatn sem næra húðina, veita andoxunarvörn og stuðla að jafnari áferð og húðlit.
EGF Serum:
· Dregur úr ásýnd hrukka og fínna lína
· Eykur og viðheldur raka í húðinni
· Þéttir og sléttir húðina
· Jafnar áferð og húðlit
· Hentar öllum húðgerðum
· Aðeins 7 innihaldsefni
· Aðeins þörf á 2-4 dropum
· Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
· Án rotvarnarefna
· Prófað af húðlæknum
Stærð: 15 ml
Hydrating Cream:
· Létt og nærandi formúla
· Gengur hratt og vel inn í húðina
· Veitir langvarandi raka
· Verndar húðina fyrir umhverfisáhrifum
· Skilur húðina eftir mjúka, slétta og ljómandi
· Frábær viðbót við reglubundna húðumhirðu
· Hentar öllum húðgerðum
· Án ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
· Prófað af húðlæknum
Stærð: 15 ml
EGF Serum Ingredients: GLYCERIN, AQUA/EAU/WATER, SODIUM HYALURONATE, TROMETHAMINE, SODIUM CHLORIDE, HORDEUM VULGARE (BARLEY) SEED EXTRACT, BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1 (EGF) Hydrating Cream Ingredients: AQUA/EAU/WATER, CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, BUTYLENE GLYCOL, C12-20 ACID PEG-8 ESTER, CETYL ALCOHOL, TOCOPHEROL, PHENOXYETHANOL, SODIUM HYALURO NATE, ETHYLHEXYLGLYCERIN, CARBOMER, SORBITAN OLEATE, POTASSIUM SORBATE, POTASSIUM HYDROXIDE, CITRIC ACID, HORDEUM VULGARE (BARLEY) SEED EXTRACT, BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1 (EGF)
Skref 1: EGF Serum: Berðu 2–4 dropa á andlit, háls og bringu með mjúkum hringlaga hreyfingum upp á við. Bíddu í 3–5 mínútur áður en aðrar vörur eru bornar á húðina. Má nota kvölds og morgna. Skref 2: Hydrating Cream: Berðu á andlit, háls og bringu og nuddaðu upp á við með mjúkum strokum.











