
BIOEFFECT Firming Favorites Sett
Gjafasett sem inniheldur EGF Eye Serum (10 ml) og Imprinting Eye Masks (2 pör)
Eiginleikar og ávinningur
Veittu augnsvæðinu aukna athygli.
Firming Favorites gjafasettið er sérhannað fyrir viðkvæmt augnsvæðið. Vörurnar vinna einstaklega vel saman þar sem EGF Eye Serum dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka, á meðan augnmaskarnir veita djúpan raka og hámarka virkni serumsins. Tilvalin gjöf fyrir þau sem vilja áhrifaríka rútínu fyrir augnsvæðið.
EGF Eye Serum (10 ml) er sérstaklega þróað til að vinna á sjáanlegum öldrunarmerkjum á viðkvæmu augnsvæðinu. Serumið dregur úr ásýnd fínna lína og dökkra bauga og þéttir og sléttir húðina í kringum augun. Létt formúlan gengur hratt inn í húðina og kælandi stálkúlan sefar augnsvæðið og dregur úr þrota og þreytumerkjum.
Imprinting Eye Masks (2 pör) eru nærandi augnmaskar fyrir viðkvæma húðina í kringum augun. Gelkennd áferðin hefur kælandi og róandi áhrif, dregur úr þrota og veitir húðinni skjótan og góðan raka. Augnmaskarnir eru sérstaklega þróaðir til að hámarka virkni EGF Eye Serum.
EGF Eye Serum
· Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
· Dregur úr þrota og þreytumerkjum
· Nærir húðina
· Eykur ljóma
· Þéttir og sléttir húðina
· Kælandi stálkúla sem vinnur gegn þrota
· Hentar öllum húðgerðum
· Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
· Prófað af augnlæknum og húðlæknum
Stærð: 10 ml
Imprinting Eye Masks
· Dregur úr þrota og þreytumerkjum
· Endurnærir húðina og veitir djúpan raka
· Þéttir og sléttir húðina í kringum augun
· Kælir og róar húðina
· Hámarkar virkni BIOEFFECT seruma
· Vatnsleysanlegur og niðurbrjótanlegur gelmaski
· Hentar öllum húðgerðum
· Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
· Prófað af húðlæknum
Stærð: 2x 3.6 g / 0.12 oz.
EGF Eye Serum Ingredients: AQUA/EAU/WATER, GLYCERIN, BUTYLENE GLYCOL, CARBOMER, SODIUM CHLORIDE, PHENOXYETHANOL, SODIUM CITRATE, SODIUM DEHYDROACETATE, SODIUM HYALURONATE, HORDEUM VULGARE (BARLEY) SEED EXTRACT, BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1 (EGF) Imprinting Eye Mask Ingredients: AQUA/EAU/WATER, GLYCERIN, DIPROPYLENE GLYCOL, 1,2-HEXANEDIOL, CERATONIA SILIQUA (CAROB) GUM, CHONDRUS CRISPUS POWDER, CHONDRUS CRISPUS EXTRACT, CELLULOSE GUM, POTASSIUM CHLORIDE, SODIUM POLYACRYLATE, HYDROGENATED POLYDECENE, SUCROSE, SODIUM HYALURONATE, TRIDECETH-6, DISODIUM EDTA, PHENOXYETHANOL
Skref 1: EGF Eye Serum: Þrýstu létt á hnappinn á botninum til að skammta augnserumi og berðu á hreina húð umhverfis augun. Nuddaðu mjúklega með fingurgómunum til að tryggja jafna dreifingu. Skref 2 : Imprinting Eye Masks: Opnaðu umbúðirnar varlega, fjarlægðu hvítu filmuna og leggðu einn maska undir hvort auga. Leyfðu möskunum að liggja á húðinni í 15 mínútur og nuddaðu síðan seruminu sem eftir situr inn í húðina. Notist 2–3 sinnum í viku fyrir hámarksárangur.











