

Tom Ford
Tom Ford Beauty var stofnað árið 2005 af bandaríska fatahönnuðinum Tom Ford. Eftir áralangan feril í tískuheiminum færði Ford sína sýn á lúxus og hönnun yfir í heim snyrtivara og ilmvatna. Árið 2006 kom Black Orchid á markað, fyrsti ilmurinn undir hans nafni, sem markaði upphafið að því ilmúrvali sem vörumerkið er þekkt fyrir í dag.

Tom Ford
Tom Ford Beauty einkennist af fágaðri hönnun og sterkri áherslu á ilmgerð. Ilmvötn skipa stóran sess hjá vörumerkinu og þar má finna allt frá einkennandi ilmum á borð við Black Orchid og Ombré Leather yfir í Private Blend línuna, sem byggir á hugmynd Tom Ford um ilm án hefðbundinna takmarkana.















































