Komum hreyfingunni aftur af stað
Þegar rútínan tekur við er gott að byrja rólega og finna hreyfingu sem passar inn í þinn hversdag. Hvort sem það er göngutúr, ræktin, hlaup eða hjólatúr skiptir mestu máli að finna taktinn aftur, eitt skref í einu.
Góð rútína byggist á mörgum þáttum sem vinna saman. Samhliða reglulegri hreyfingu er mikilvægt að huga að fjölbreyttu mataræði, nægum vökva, hvíld og þeim næringarefnum sem líkaminn þarf á að halda.




