
Vöruflokkar

Um Issey Myiake
Japanski hönnuðurinn Issey Miyake stofnaði merkið sitt árið 1970 og varð þekktur fyrir að endurhugsa fatnað frá grunni, með einfaldleika, hreyfingu og nýstárlega tækni að leiðarljósi. Sama hugsun liggur að baki ilmvötnum hans.
Árið 1992 kynnti hann L’Eau d’Issey, á tíma þegar þungir og áberandi ilmir réðu ríkjum. Miyake vildi eitthvað allt annað: ilm sem minnti á vatn á húð, tæran, ferskan og léttan. Útkoman varð einn af fyrstu „vatnsilmunum“ og ilmur sem breytti ilmvatnsheiminum. Glasið, einfalt og keilulaga, er sagt innblásið af tunglinu yfir Eiffelturninum, eins og Miyake sá það úr íbúð sinni í París.
Tveimur árum síðar kom L’Eau d’Issey Pour Homme, ferskur og viðarkenndur, sem varð fljótt jafn sígildur og systir hans. Síðan þá hefur fjölskyldan stækkað með ilmum á borð við dýpri og dularfyllri Nuit d’Issey og mjúka A Drop d’Issey, en kjarninn er alltaf sá sami: hreinleiki, jafnvægi og náttúrulegur glæsileiki.
Ilmvötn Issey Miyake eru fyrir þá sem kjósa fágun fram yfir hávaða – ilm sem fylgir þér, frekar en að ganga á undan þér.


