Kíktu til okkar í næsta Apótekara, við tökum vel á móti þér og hjálpum þér að finna þau vítamín og bætiefni sem henta þér og þinni heilsu.
Vítamín og steinefni með hækkandi aldri
Vítamín og steinefni eru nauðsynleg til að viðhalda eðlilegri líkamsstarfsemi og almennri heilsu. Besta leiðin til að fá þessi næringarefni er að borða holla og góða fæðu en það dugir þó ekki alltaf til þegar aldurinn færist yfir.
Orkuþörf okkar minnkar með hækkandi aldri, einkum vegna hægari efnaskipta og minni hreyfingar. Þörfin fyrir lífsnauðsynleg vítamín og steinefni helst hins vegar óbreytt eða jafnvel eykst. Það er því mikilvægt að huga vel að næringargildi fæðunnar og markvissri inntöku vítamína og steinefna samhliða hollu og góðu mataræði.


D-vítamín og kalk
Bæði D-vítamín og kalk eru nauðsynleg til að viðhalda góðri beinheilsu og koma í veg fyrir beinþynningu. D-vítamín er nauðsynlegt svo líkaminn geti nýtt kalk úr fæðunni og tryggt að það skili sér inn í beinvefinn.
Þar sem sólarljós á Íslandi er ófullnægjandi til D-vítamínmyndunar meirihluta ársins, er mælt með daglegri inntöku þess í formi lýsis eða taflna.
Ráðlagður dagskammtur (RDS) fyrir 70 ára og eldri: 20 µg (800 AE) af D-vítamíni og 950 mg af kalki.

B12-vítamín
B12-vítamín er lífsnauðsynlegt fyrir taugakerfið og blóðmyndun og því getur skortur valdið blóðleysi. Með aldrinum dregur oft úr upptöku vítamínsins vegna minni magasýruframleiðslu eða inntöku ýmissa lyfja sem geta truflað upptöku vítamínsins frá meltingarvegi. B12-vítamín í formi munndreifitaflna og munnsprey geta því reynst áhrifarík, þar sem vítamínið frásogast beint í gegnum slímhúð munnsins.
Ráðlagður dagskammtur (RDS) fyrir 70 ára og eldri: 4,0 mcg

Járn
Fyrir fólk 67 ára og eldra geta járnbirgðir skipt verulegu máli fyrir orku, úthald og starfsemi hjarta- og æðakerfis. Aldurstengdar breytingar á meltingarvegi geta torveldað upptöku járns, sem þýðir að jafnvel járnríkt mataræði dugar ekki alltaf til að viðhalda heilbrigðum járnbúskap. Skortur getur valdið mikilli þreytu og slappleika.
Járn sjálfspróf fæst í Apótekaranum og getur verið auðveld og gagnleg leið til að athuga járnforða líkamans.
Ráðlagður dagskammtur (RDS) fyrir 70 ára og eldri: Karlar 9mg / Konur 7mg

Magnesíum
Magnesíum er steinefni sem er líkamanum lífsnauðsynlegt, sérstaklega fyrir eðlilega starfsemi taugakerfis og vöðva. Ef líkamann skortir þetta steinefni getur það lýst sér í vöðvakrömpum, fótapirringi, síþreytu og erfiðleikum með svefn. Þar sem upptaka þess minnkar gjarnan þegar fólk eldist getur verið þörf á að taka magnesíum inn sem bætiefni. Úrvalið er fjölbreytt og hentar mismunandi þörfum, en Magnesium Glycinate og Magnesium Citrate eru þau form sem nýtast líkamanum einna best. Magnesium bætiefni er til í mismunandi formum, til dæmis sem töflur, duft, munn-eða líkamssprey eða sem baðflögur.
Ráðlagður dagskammtur (RDS) fyrir 70 ára og eldri: Karlar 350mg / Konur 300mg
Augnheilsa
Með hækkandi aldri er algengt að sjónin breytist og hætta á augnsjúkdómum eykst. Augnvítamín eins og A-, C-, og E-vítamín, lútín og zeaxantín geta verið mikilvæg þegar við eldumst þar sem þau virka sem öflug andoxunarefni. Þau vernda frumur sjónhimnunnar og hægja á hrörnun eins og aldurstengdri augnbotnahrörnun.
Sérhæfð augnvítamín sem fást í apótekum eru hönnuð til að styðja við sjón, vernda augnbotna og viðhalda almennri augnheilsu.




















