Af hverju ég vil vera sterk.
Arnhildur Anna er kraftlyftingakona og þjálfari. Hún útskrifaðist sem styrktarþjálfari frá ÍAK 2021 og hefur starfað við þjálfun síðan þá. Arnhildur opnaði nýverið vefinn sinn www.adda.coach þar sem hún býður upp á fjarþjálfun fyrir konur. Æfingaáætlunin er byggð á hinni heilögu þrenningu; hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu. Æfingarnar henta konum á öllum aldri, byrjendum sem lengra komnum.

Af hverju ég vil vera sterk?
Að vera sterk snýst um svo miklu meira en að lyfta bara þungum lóðum. Fyrir mér snýst styrkur fyrst og fremst um betri líðan, að hafa meiri orku, finna minna fyrir verkjum, sofa betur og treysta líkamanum í mínu daglegu lífi.
Hér deili ég nokkrum ástæðum þess að ég tel fjárfestingu í styrk eitt af því allra skynsamlegasta sem við konur getum gert hvað varðar okkar eigin heilsu.

Ég lyfti lóðum til að:
- Vera hraust
Mér finnst besta tilfinning í heimi að vera sterk og er stolt af vöðvunum mínum sem tók mig mörg ár að þjálfa og byggja upp. Hraustleiki fyrir mér er að vera orkumikil, getað gert það sem mig langar til þegar ég vil, finna ekki fyrir daglegum verkjum í líkamanum, vera bein í baki, sofa vel og hafa góða matarlyst. - Hugsa skýrt
Í miðri lyftu verður núvitundin algjör og þetta er frábær leið til að hreinsa hugann. Eftir góða lyftingaæfingu verða hin verkefni dagsins einfaldari og trúin á sjálfri þér töluvert meiri. - Sofa betur
Þungar lyftingar æfingar hafa áhrif á taugakerfið og þreyta líkamann. Svefninn er grunn undirstaða góðrar heilsu að mínu mati og svefninn hefur aldrei verið betri síðan eftir að ég fór að stunda kraftlyftingar. Prófaðu og finndu muninn. - Eldast vel
Kraftlyftingar stuðla að sterkari líkama og sterkari beinum og vinna því gegn öldrun. Með lyftingunum erum við því að koma í veg fyrir vöðvarýrnun og beinþynningu. Besta dæmið er 84 ára gamall afi minn sem lyftir lóðum nokkrum sinnum í viku, hann er í þrusuformi og beinn í baki! Ætli kraftlyftingar séu ekki hið besta yngingarmeðal?

Ég lyfti lóðum til að:
- Safna vöðvamassa
Að stunda kraftlyftingar er áhrifarík leið til að auka vöðvamassa líkamans og með hækkandi aldri er nauðsynlegt að viðhalda honum. Fyrir utan hvað vöðvar eru fallegir og merki um hraustleika, þá einfalda þeir okkur lífið og hversdagslegir hlutir verða mun einfaldari í framkvæmd. Einn af stóru kostum þess að stunda kraftlyftingar er aukinn vöðvamassi, sem þýðir aukna grunnbrennslu og enn betri mataralyst. - Vera betri mamma
Foreldrahlutverkið krefst orku og þrautseigju til að takast á við áskoranir dagsins. Þegar ég fengið mína útrás í lyftingarsalnum er ég enn reiðubúnari til að sinna fjölskyldunni minni. Sem betur fer er ég nógu sterk og kröftug til að leika við dóttur okkar og halda á henni. - Efla sjálfstraust
Að sjá sjálfa sig verða sterkari viku eftir viku er ótrúlega valdeflandi. Að lyfta þyngd sem ég hef ekki lyft áður er stór áskorun fyrir hugann og bætir sjálfstraustið til muna. Öll önnur verkefni dagsins verða minna mál og ég finn að ég kem fleiri hlutum í verk. Kraftlyftingar gefa okkur aukið sjálfstraust og sterkari líkama. Þetta getur ekki klikkað!

Arnhildur Anna Árnadóttir
Lyftu lóðum og ég lofa að þér mun líða betur