heimsending á lyfjum og öðrum vörum

Heimsent eða sótt

Apótekarinn býður upp á heimsendingu á lyfjum og öðrum vörum víðsvegar um landið. Hægt að fá sent heim samdægurs ef pöntun berst fyrir kl. 12, annars næsta virka dag.
Heimsendingar eru í boði á eftirtöldum stöðum:
Höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Akranesi, Selfossi, Hveragerði og í Reykjanesbæ.

Opnunartími LYFIN HEIM er alla virka daga kl. 9 - 16
s.551 7166 og tölvupóstur lyfinheim@apotekarinn.is

Til að fá heimsent eða sækja þarf að fylla út reitina hér fyrir neðan.

Takk fyrir. Við höfum samband fljótlega.
Oops! Something went wrong while submitting the form.

Gagnlegar upplýsingar um heimsendingu og póstsendingu lyfja: 

Til þess að fá lyfseðilsskyld lyf afgreidd í heimsendingu verður rafrænn lyfseðill að vera til í gáttinni. Hægt er að fá upplýsingar um lyfseðla á
heilsuvera.is.
Pantanir eru sendar samdægurs ef pöntun er gerð fyrir kl. 13 annars næsta virka dag.
Heimsendingargjald er 990 kr.á höfuðborgarsvæðinu og frítt  fyrir elli- og örorkulífeyrisþega ef um lyfseðil er að ræða, gildir ekki um lyfjaskömmtun.

Lyf sem þarf að senda með póstinum fara í ábyrgðarpóst og má einungis afhenda þeim sem þau eru stíluð á. Kostnaðurinn við póstsendinguna ásamt umbúðagjaldi greiðist af viðtakanda.

Ekki má póstsenda eftirritunarskyld lyf sem eru þau lyf sem geta haft í för með sér sérstaka hættu á misnotkun. Einnig munu lyf sem þarf að geyma í kæli ekki verða póstsend.

Lyfjaskömmtun

Ef þú tekur lyf að staðaldri þá er SA lyfjaskömmtun fyrir þig. 

Það er auðvelt að byrja í lyfjaskömmtun

Með lyfjaskömmtun færðu betri yfirsýn yfir þína lyfjameðferð auk þess sem hún eykur meðferðarheldni og getur þannig gert lyfjameðferðina áhrifaríkari.

Til að byrja í lyfjaskömmtun þarf læknir eða skjólstæðingur að hafa samband við apótek Apótekarans til að leggja inn beiðni um lyfjaskömmtun. Læknir þarf að senda lyfjaávísanir í lyfjagátt fyrir þeim lyfjum sem á að skammta og þurfa þær ávísanir að vera sérstaklega merktar fyrir lyfjaskömmtun.

Þegar allar lyfjaávísanir eru tilbúnar getur lyfjaskömmtun hafist og er afgreiðslutími á fyrstu lyfjarúllu 2-3 virkir dagar. Skammtað er í allt að 28 daga í senn.

Lyfjunum er vélskammtað í lyfjarúllur samkvæmt kröfum gildandi reglugerða um lyfjaskömmtun og eru þær afhentar í pappa öskjum til skjólstæðinga. Hver inntökutími á sér sinn lyfjapoka þar sem koma fram allar helstu upplýsingar, svo sem nafn og kennitala skjólstæðings, dag- og tímasetning inntöku ásamt nöfnum þeirra lyfja sem eru í hverjum poka og töflufjölda þeirra.

Kostnaður og greiðslufyrirkomulag*

Einn af kostum þess að vera í lyfjaskömmtun er að aðeins er greitt fyrir þau lyf sem afgreidd eru hverju sinni. Lyfjaverð er samkvæmt gildandi lyfjaverðskrá hverju sinni og fer kostnaður skjólstæðinga eftir því hvar þeir standa í greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands.

· 1-7 dagar: 790 kr.
· 8-14 dagar: 1.090 kr.
· 15-28 dagar: 1.698 kr.

Skömmtunargjald fer eftir því hersu marga daga þú pantar í hvert sinn og valin er heimsending bætast 990kr. við skömmtunargjaldið.

Þú getur kynnt þér lyfjaskömmtun í næsta apóteki Apótekarans eða með því að senda okkur tölvupóst á lyfjaskommtun@lyfjaskommtun.is. Einnig er hægt að hafa samband við SA lyfjaskömmtun í síma 544-2323.

*verð getur breyst án fyrirvara

Lyfjaskömmtun eykur öryggi og þægindi.

Mælingar

Með því að vera meðvituð um starfsemi líkamans og bera ábyrgð á heilsu okkar getum við oft á tíðum gripið inní og komið í veg fyrir þróun sjúkdóma. 

Apótekarinn leggur sérstaka áherslu á forvarnir í átt að betri heilsu. Við bjóðum upp á allt að þrenns konar mælingar, blóðþrýstings-, blóðfitu- og blóðsykursmælingar sem geta gefið vísbendingar um líkamsástand þitt til framtíðar. Mælingarnar eru mismunandi eftir apótekum, sjá

APÓTEK

Ekki bíða lengur, komdu reglulega í mælingar og fylgstu með heilsu þinni. Sérfræðingar í apótekum Apótekarans taka vel á móti þér. 

BS - Blóðsykursmæling
BÞ - Blóðþrýstingsmæling
BF - Blóðfitumæling