Markmið Apótekarans er að auka lífsgæði viðskiptavina okkar með því að bjóða þeim lyf og aðrar heilsutengdar vörur ásamt framúrskarandi þjónustu.
Við öxlum þá miklu ábyrgð að vera mikilvægur hlekkur í góðu íslensku heilbrigðiskerfi og vinnum markvisst að því að gera það enn betra.
Við veitum persónulega, hraða, örugga og faglega þjónustu.